Large font Larger font Normal font
IS | EN | DE | PL
Forsíða :: Þjónusta
Grunnþjónusta
Grunnþjónusta er ætluð notendum sem hafa þörf fyrir almenna þjónustu milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga. Innifalinn er aðgangur að þjónustukerfi Hugvits og aðstoð í gegnum það sem nemur allt að einni klukkustund á mánuði, ásamt 10% afslætti af tímagjaldi Hugvits eins og það er á hverjum tíma. Fyrir símtal í neyðarsíma er greidd einn klukkustund.

Bakvaktarþjónusta
Bakvaktarþjónusta er ætluð notendum sem þurfa þjónustu utan hefðbundins vinnutíma. Innifalin er Grunnþjónusta ásamt aðgangi að þjónustumönnum (í neyðarsíma) á milli kl. 8:00 og 24:00 virka daga.

Sólarhringsþjónusta
Sólarhringsþjónusta er ætluð notendum sem þurfa þjónustu allan sólarhringinn. Innifalin er öll þjónusta Bakvaktarþjónustu ásamt aðgangi að þjónustumönnum (í neyðarsíma) á bakvakt allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.

Sérþjónusta þjónustuvers
Þjónustuver Hugvits býður að auki upp á sérþjónustu sem ætlað er að tryggja rekstraröryggi viðskiptavina enn frekar á sama tíma og rekstrarkostnaður er lágmarkaður.

Þjónustubeiðnir á Netinu
Þú getur pantað þjónustu og fylgst með stöðu mála á Netinu. Þú einfaldlega skráir þig inn, fyllir út þjónustubeiðni og fylgist svo með gangi mála.

Öryggisúttekt
Sérfræðingar Hugvits bjóða uppá öryggisúttekt á tölvu- umhverfum þar sem farið er yfir uppsett kerfi, þau stillt og komið með ábendingar um atriði sem betur mega fara.

Fyrirbyggjandi eftirlit
Fyrirbyggjandi eftirlit er viðbótarþjónusta sem felst í því að í hverjum mánuði eru helstu rekstrarþættir yfirfarnir með tilliti til villna og frávika og gerðar tillögur að úrbótum. Fyrirbyggjandi eftirlit miðast að því reyna að koma auga á vandamál í rekstrarumhverfi áður en þau valda skaða.

Rekstrarþjónusta
Hugvit býður fyrirtækjum og stofnunum upp á að sjá um daglegan rekstur GoPro tölvukerfa og tryggja þannig hámarks rekstraröryggi með lágmarks tilkostnaði.

Nýjar útgáfur
Með hverri nýrri útgáfu af GoPro vörum eru aðgengilegar upplýsingar um nýjungar og lýsingar á breytingum. Þessar upplýsingar ásamt leið til að senda inn ábendingar varðandi vörur GoPro er hægt að finna á enska vef GoPro hér.