GoPro fyrir Domino

GoPro heldur á skipulegan hátt utan um viðskiptavini og samskipti við þá. Öll skjölun samskipta og rekstur mála eða verkefna er skipulögð á einfaldan en jafnframt mjög skilvirkan hátt. Samþætting við önnur kerfi einfalda skjölun upplýsinga í einu miðlægu hópvinnukerfi sem tryggir aðgang fyrir starfsmenn á þægilegan og fljótlegan máta.
Hugvit býður upp á GoPro fyrir Domino með fullkominni samþættingu við Lotus umhverfið.
GoPro er fullkomin mála- og skjalastjórnunarlausn sem tekur á öllum þörfum fyrir öfluga skjala- og málastjórnun innan fyrirtækja og stofnana.
• Staðlar samskipti og bréfaskriftir
• Eykur skilvirkni með stöðluðum verkferlum
• Tryggir meðfylgni við ferli og þjónustuleiðir með notendavænni málastjórnun
• Bætir þjónustu, þar sem starfsmenn hafa aðgang að öllum upplýsingum
• Minnir á skilafresti og ábyrgðarhlutverk með sjálfvirkum áminningum
GoPro auðveldar hópvinnu starfsmanna mismunandi deilda, og jafnvel heimsálfa, þar sem þeir geta unnið með sömu skjölin samtímis. Þetta bætir samvinnu starfsmanna og dregur úr þörf fyrir tímafreka fundi.
Yfirgripsmikil skjalastjórnun
GoPro heldur utan um skjöl, tengiliði og samskipti sem tengjast hverju máli eða ferli svo hægt sé að nálgast allar upplýsingar á einum stað. Með öflugu skjalastjórnunarkerfi GoPro má þar að auki:
• Flokka og fá yfirlit yfir öll skjöl með ítarlegu bréfalyklakerfi
• Koma í veg fyrir upplýsingatap með sjálfvirkum skjalalæsingum
• Fá aðgang að fullri skjalasögu
• Stjórna aðgangi að skjölum eftir einstökum notendum eða deildum
• Fylla inn upplýsingar beint úr GoPro með stöðluðum skjölum
• Færa upplýsingar í vörslu
Hafið samband við Hugvit til að fá frekari upplýsingar eða bókið kynningu með starfsmönnum okkar nú þegar í síma 510 3100.
Þú nærð betri árangri með GoPro.
Frekari Upplýsingar
GoPro fyrir Domino Bæklingur